Lögmenn Höfðabakka
  Áherslur
  Samstarf
  Saga fyrirtækisins
    
    

LÖGMENN HÖFÐABAKKA
Lögmenn Höfðabakka bjóða upp á alhliða lögfræðilega þjónustu en fyrirtækið sérhæfir sig í verkefnum fyrir atvinnulífið og opinbera aðila. Grundvallarstefna lögfræðistofunnar er að veita ávallt gæðaþjónustu þar sem áhersla er lögð á hraða og árangursríka afgreiðslu með nútímatækni og sérhæfingu til að fullnægja sívaxandi kröfum. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins má nefna fyrirtæki á fjármálamarkaði, hið opinbera, sveitarfélög og sum öflugustu einkafyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið er í samstarfi við lögfræðistofur í London, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Osló, New York og Washington

Lögmenn stofunnar:

HREINN LOFTSSON
 
ÞÓRÐUR BOGASON
 
EINAR FARESTVEIT
 
GUNNAR INGI JÓHANNSSON
 
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR
 
VIGDÍS ÓSK SVEINSDÓTTIR
 

 

Starfsmenn stofunnar:
BERGLIND JÓNSDÓTTIR
Skrifstofustjóri  

ÁHERSLUR
Lögmenn Höfðabakka leggja sérstaka áherslu á banka- og fjármálaþjónustu, eignarrétt, Evrópurétt, félagarétt, hugverkarétt, kröfurétt, mannréttindamál, málflutning, samkeppnismál, samningarétt og samningagerð, skaðabótarétt, stjórnskipunar- og stjórnsýslurétt, tryggingamál, umhverfisrétt, veðrétt og verðbréf.



SAGA FYRIRTÆKISINS
Lögmannsstofan Lögmenn Höfðabakka er stofnuð af Hreini Loftssyni hrl. í byrjun ársins 2000. Hreinn var árin 1990-1999 einn eigenda Lögmanna Höfðabakka sf. sem starfaði í sama húsnæði og nýja stofan á árunum 1983-1999. Hreinn Loftsson hrl. og Þórður Bogason hdl. tóku upp samstarf um rekstur stofunnar í mars 2000.